Verið hjartanlega velkomin á opnun einkasýningar Valgerðar Sigurðardóttur, Þættir, laugardaginn 28. júní, kl. 15 – 17.
Valgerður Sigurðardóttir (f. 1992, Reykjavík) snýr nú aftur til Íslands með sína fyrstu einkasýningu hér á landi frá því hún flutti til Belgíu. Á sýningunni kemur hún heim með glænýja röð keramikverka – og er þessi heimkoma jafnt persónuleg sem og fagurfræðileg. Í verkunum leitar Valgerður inn á við og nálgast persónuleg viðfangsefnin með auðmýkt, – á kvenlegan, dularfullan og ljóðrænan hátt.
Verkin spretta oft úr kunnuglegum aðstæðum – heimilislegum senum, draumum, tilfinningum – og leiða okkur inn í rými þar sem mörkin milli öryggis og óöryggis, kunnugleika og óráðs, þurrkast út. Hún dregur upp hugrænt landslag sem er bæði persónulegt og sammannlegt – þar sem sögur, minningar og dulvitund hríslast saman.
Valgerður Sigurðardóttir (f. 1992, Reykjavík, Ísland. Býr og starfar í Antwerpen, Belgíu), lauk meistaragráðu í myndhöggun frá KASK í Gent, Belgíu. Áður stundaði hún nám við Royal Academy of Arts í Antwerpen sem Erasmus-nemandi frá Listaháskóla Íslands, þar sem hún lauk BA-prófi. Árið 2017 var hún ein af stofnendum sýningarplássins ABC Klubhuis. Frá árinu 2013 hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga í Reykjavík, Osló, Gent, Antwerpen og Rúmeníu.
Frítt inn og léttar veitingar.
Also check out other Arts events in Reykjavík.